453 7935 hofsos@hofsos.is
  • Íslenska
  • English
  • Sýningin gefur góða mynd af lífi þeirra þúsunda Íslendinga sem fluttust til „nýja heimsins“. Raktar eru í máli og myndum ástæður þess að um fjórðungur þjóðarinnar fluttist búferlum til Ameríku. Margvísleg  harðindi, aflabrestur og erfiðar félagslegar aðstæður eru þættir sem fjallað er um á sýningunni enda eru þeir helstu orsakavaldar fyrir hinum mikla fólksflótta. Leitast er við að sýna á sem gleggstan hátt hvernig Íslendingar bjuggu á seinni hluta 19. aldar. Sýnt er á kortum hvaðan fólk fluttist og hve margir og hver heimkynni þeirra urðu vestan hafs. Einnig er lýst væntingum fólksins, undirbúningi fyrir brottflutning, ferðalaginu sjálfu og aðstæðum sem biðu þess er vestur var komið. Þessi sýning var unnin af Byggðasafni Skagfirðinga fyrir Vesturfarasetrið og er í eigu Byggðasafnsins.